spring break og gestirHerdís Helga Arnalds

Nú styttist aldeilis í gestina, Tobbi og Stebbi eru að koma á föstudaginn og það er ekkert lítill spenningur í gangi.  Held að það verði mjög gott að fá þá og geta aðeins hugsað um eitthvað annað en nám og hlaup!  Svo eftir 13 DAGA í dag kemur Arndís til Californiu og ég ætla ekki einu sinni að reyna að lýsa því hvernig spenningurinn er!  Annars er síðasta vika búin að vera heldur leiðinleg, mjög mikið að gera í skólanum núna og endalaus test, ritgerðir, endurskrif á ritgerðum, miðannarpróf og ég veit ekki hvað og hvað.  Þetta róast nú heldur betur í næstu viku því þá er komið Spring Break sem er alveg vika.  Ætli maður keyri ekki eitthvað um og reyni að sýna gestunum þetta helsta :) Verður æði að geta bara keyrt um og skoðað flotta staði og þurfa ekkert að hugsa um nám á meðan.  Vonandi bara að veðrið verði gott.  

Annars ætlaði ég ekki að hafa þetta langt í dag, blogga fljótt aftur! 

Jææææja!Herdís Helga Arnalds

Jæja, ég hef bara ekki undan að skrifa bloggin.. ákvað því að skrifa eitt stykki núna bara svona til að halda í hefðina.. eða þannig!
Sem sagt margt og mikið gerst síðan ég skrifaði síðast, því þá var ég heima á Íslandi.  Núna er ég komin út í sólina og hér er lífið voða fínt!  Ég lenti samt í þvílíku svekkelsi fyrir svona 2 vikum og komst að því að ég er með álagsbrot, sem voru HRÆÐILEGAR fréttir!! Núna sé ég samt að þetta var svo sem ekki svona rosalega hræðilega andstyggilegt eins og mér fannst þetta í byrjun því þjálfararnir eru alltaf að reyna að telja mér trú um að þetta geti nú orðið mikið verra heldur en þetta.  Ég sit nú ekki auðum höndum samt því ég syndi bara og hjóla í staðinn og er að safna "byssum" (þó það eigi aldrei eftir að takast).  Ég er nú búin að bæta mig í einhverju því ég get tekið heilar 5 upphýfingar sem er 5 sinnum meira en ég gat áður en ég meiddist :)  Er búin að vera á hækjum í 2 vikur en er núna komin af þeim, sem betur fer.  Ég þakka guði fyrir að vera ekki alltaf á hækjum, það er hræðilega erfitt og tekur svo langan tima að komast á milli staða.  
En það eru nú ekki bara leiðinlegar meiðsla fréttir að frétta því við erum búin að kaupa bíl!! Geðveikan amerískan Buick sem er svona um það bil 20 metra langur.  Ég elska að keyra hann og sérstaklega leggja í stæði.. not!  

Bestu fréttirnar af öllu eru svo að elsku bestasta Arndísin mín er að koma í heimsókn eftir 2 VIKUR!!! ég get ekki beðið og vakna á hverjum degi ofboðslega glöð því það styttist í hana!! Tobbi og Stebbi Már eru líka að koma og auðvitað get ég heldur ekki beðið eftir þeim, það verður svo mikil snilld!  Það verður svo gaman hjá okkur öllum en því miður ná Stebbi Már og Arndís ekki að vera hér á sama tíma! Vonandi ætlar Stebbi Guðmunds svo að kíkja en hann er að koma til USA fljótlega!
Það verður svo mikil snilld þegar þau öll koma og við getum sýnt þeim allt hérna og kynnt þau fyrir fólkinu! 

Annars er ég bara komin í helgarfrí núna þar sem ég er ekki í skólanum á föstudögum! Læt í mér heyra fljótlega.

 

Berkeley á morgun!Herdís Helga Arnalds

Jæja, þá er jólafríið á Íslandi að klárast. Búið að líða hratt enda er maður búinn að hafa það svo rosalega gott.  Þessi hvíld var ekkert smá kærkomin og ótrúlega þægilegt að geta bara verið heima með fjölskyldu og vinum og æft á hvaða tímum dagsins sem maður vill, enda var það eiginlega það eina sem maður þurfti að gera yfir daginn. 
Sem sagt flug út til New York seinnipartinn á morgun og svo til San Francisco eftir það. 
Er bæði spennt og kvíðin að fara aftur út, en það er nú aðallega spenningur fyrir komandi tímabili í hlaupunum sem ég er spenntust fyrir. Hlakka ekkert SMÁ til að byrja að keppa á brautinni enda held ég að ég geti bætt mig mikið!  Þessi önn verður vonandi aðeins auðveldari en sú fyrsta skólalega séð, nú þekkir maður allt miklu betur og veit hvað maður er að fara út í.  Er að taka spennandi tíma og er bjartsýn á að þeir eigi bara eftir að ganga þokkalega. 
Komum út á föstudegi þannig maður hefur helgina til að undirbúa sig aðeins, kaupa bækur og finna út í hvaða byggingum allir þessir nýju tímar eru :)

Ætlaði ekki að hafa þetta lengra í bili, takk fyrir æðislegt jólafrí allir!!!

Ég er á leiðinni.. á leiðinni..Herdís Helga Arnalds

Sit núna á JFK í New York og er búin að slá öll met í að vera mygluð! Vildi bara aðeins láta heyra í mér áður en ég kem á klakann, sem er bara eftir nokkra klst :) Ég er búin að vera eins og lítill krakki síðustu daga (ekki að höndla tilhlökkunina við að koma heim, jólin og öllu skemmtilega stússinu sem þeim fylgja)!
Prófin eru sem sagt búin og þau gengu bara alveg ágætlega held ég en einkunnirnar láta ekki á sér kræla fyrr en eftir 3-4 vikur, vona nú samt að kennararnir verði nice og hendi þessu inn fljótlega.

Ferðalagið heim er semsagt hreinn viðbjóður, 2 næturflug í röð og 12 tíma bið á JFK þar á milli.  Flugið frá Californiu til New York var hundleiðinlegt, hristingur og læti allan timann og mér var ekki skemmt!  Það verður sem sagt laaaangþráð að koma heim :)

Sé ykkur heima!

Thanksgiving búin!Herdís Helga Arnalds

Allt gott að frétta, gerist ekkert rosalega mikið þessa dagana annað en lærdómur og æfingar! Lokaspretturinn byrjaður og aðeins vika eftir af kennslu.  Mér finnst mjög skrýtið að kennslan sé enn í fullum gangi, en í framhaldsskóla var ég alltaf byrjuð í prófum um þetta leyti.  Fer í 3 stór próf, 2 þeirra eru þann 16. desember og það þriðja daginn eftir.  Þið megið sem sagt senda mér gleðistrauma 16.desember þar sem það verður ekki skemmtilegasti dagurinn!

Annars er Thanksgiving búin og ég fór heim til Mickey vinkonu minnar frá miðvikudegi til laugardags.  Það var ekkert smá þægilegt að breyta aðeins um umhverfi og fá þvílíkan mat!  Kalkúnninn var næstum því stærri en ég!  Annars býr hún í rosalega flottu hverfi sem er svona 30 mínútur hérna frá og húsin öll mjööög flott.  
Vildi nú bara deila því með ykkur að ég sá vin minn hann Michael Johnson frjálsíþróttastjörnu.. Ég náttúrulega spurði kappa hvernig það væri að vera orðinn semi-hraðasti maður ever ;) Allavega fannst mér þetta geðveikt atvik, kannski ekki allir sammála mér í því :)
George Lucas, Andre Agassi, Carlos Santana og fleiri góðir búa svo í næstu götu sem gerði þetta heldur betur spennandi fyrir gömlu! Fórum svo í siglingu á San Francisco Bay sem var rosalega gaman.  Sigldum undir Golden Gate Bridge og svona!

Annars ætlaði ég bara að hafa þetta stutt í dag, ætla að halda áfram að stærðfræðast! 

Í fréttum er þetta helstHerdís Helga Arnalds

Hallú, byrja eins og alltaf.. afsakið bloggleysi síðustu daga! Búið að vera heldur betur busy síðustu daga. Var að koma heim úr síðasta miðannarprófinu rétt í þessu og ég er mjög glöð en um leið stressuð.  Þetta þýðir að:
1. það styttist í heimkomu, sem er æði :) Get ekki beðið eftir að koma heim í jólin og knúsa alla! - æðisleg tilfinning
2. Jólin eru auðvitað að koma, en þau eru uppáhalds uppáhalds uppáhalds tíminn minn! - góð tilfinning
3. önnin er að klárast, sem þýðir að maður þarf að fara að undirbúa sig fyrir lokasprettinn - ekki eins góð tilfinning
4. lokaprófin fara að bresta á - hræðileg tilfinning

Nú verður sem sagt bara tekið hrikalega á því í lærdómnum (en um leið verður maður að passa sig að fara bara ekki yfir um) því maður þarf að eiga slatta orku eftir fyrir æfingarnar, þær eru aldrei neitt grín heldur.
Flest fögin ganga bara prýðilega, nema elskulega stærðfræðin! Það er ennþá mín kenning að kennarinn eigi eftir að mæta í tíma einn daginn og segjast bara hafa verið að grínast með námsefni og einkunnagjöf vetrarins og hann ætli að skala alla upp um 5 heila því meðaleinkunnin í þessum bekk er ekkert eðlileg. Þetta er um 450 manna bekkur og í síðasta prófi var meðaleinkunnin 3,8.  Þetta er kannski ekkert hræðilegt en þegar maður lítur yfir bekkinn og sér alla ómannlega kláru krakkana sér maður að þetta er langt frá því að vera við hæfi!! 
Ég vildi að ég gæti lýst stærðfræðitímunum betur en þeir geta verið alveg snilld! ég hef nú alltaf haldið því fram að ég sé nörd inn við beinið en í þessum tímum minnka nörda eiginleikar mínir um helming.. orðum það bara svoleiðis :)

Hérna er annars komið upp jólaskraut í búðum og um helgina labbaði ég inn í búð þar sem verið var að spila jólalagið "it's beginning to look a lot like Christmas", man ekki hvað það heitir. Mér fannst þetta náttúrulega mjög skondið þar sem það er ekkert til í þessu! Sól og fólk í stuttbuxum er bara ekki jólastemmning! 
Ég talaði við mömmu um daginn og fékk allar jólasmáköku-uppskriftirnar og byrja að baka í desember, strákarnir í húsinu eru orðnir mjöööög svo spenntir og kunna bara ágætlega við þessa hefð okkar :)
Og talandi um íslenskar hefðir, þá gerði ég grjónagraut í gær og það var bara hlegið að manni! spurt hvort að það væri kreppa á Íslandi og ég veit ekki hvað og hvað.. sögðu að grautar væru "old school". 

Annars er cross country tímabilið búið hjá mér í bili, sem mér finnst frekar skrýtið. Næst er það bara innanhúss tímabil sem ég er ótrúlega spennt fyrir. Vona bara að ég fái að hlaupa eitthvað á því en það er svo sem ekki stærsta tímabilið hérna í Californiu þar sem það er engin gríðarleg þörf fyrir innanhúshöllum. Fólk æfir bara úti í góða veðrinu og innanhús tímabilið hefur aldrei verið talið eins mikilvægt og utanhúss.  Lærið hefur eitthvað verið að trufla mig og þessi vika hefur verið heldur létt, búin að vera endalaust á hjólinu og tók skokk og 80 mínútna hjól eftir á mest þessa vikuna. Ekki alveg það skemmtilegasta en alltaf líf og fjör í lyftingarklefanum þar sem þrekhjólin eru svo það reddar þessu.

Hafið það gott!

Komin frá Oregon!Herdís Helga Arnalds

Jæja, kominn föstudagur sem þýðir helgi framundan.. það er alltaf voða ljúft.  Vikan er búin að líða eins og ég veit ekki hvað, kom heim frá Oregon síðustu helgi og það gekk svona líka glimrandi vel.  Ég hljóp einni og hálfri mínútu hraðar heldur en mánuði áður og endaði á 23:30 í 6 kílómetrunum. Brautin var aðeins erfiðari heldur en áður, meðal annars því það hafði rignt um nóttina svo hún var frekar "drullug". Er sem sagt mjög sátt með árangurinn og vonandi að maður haldi bara áfram á þessari braut.  
Mér fannst Oregon mjög heillandi fylki, minnti mig smá á Ísland.. Kannski því maður er búinn að vera í Californiu í 3 mánuði og hér er umhverfið og náttúran mjög ólík íslenskri náttúru.
Þegar við komum heim frá Oregon var svo Halloween, og ég er ekki frá því að ég sé nú bara frekar fegin að hún sé búin. Nú er allt þetta blessaða hrekkjavökudót farið úr búðunum og jóladót komið í staðinn.. Jólin eru klárlega minn tími frekar en hrekkjavaka!

Á þriðjudaginn voru svo forsetakosningarnar eins og örugglega ALLIR vita. Lítið talað um annað þessa dagana en það fer nú líklega eitthvað að minnka.  Eftir að úrslitin voru tilkynnt hlupu allir út á götu og fóru bara að dansa, það var fyndið! við fórum nokkur niður í miðbæinn og tókum auðvitað dansinn með liðinu :) Ætla að reyna að setja inn myndir og video af þessu, þetta var svo mikil snilld! Margir sem eru rosa sáttir með úrslitin en á móti aðrir sem eru ekki sáttir.  Maður er bara liggur við mest hræddur um öryggi Obama.. Það er til svo mikið af vitleysingum í heiminum! 
Samhliða kosningunum var svo kosið m.a. um hvort það ætti að leyfa hjónaband samkynhneigðra og var niðurstaðan sú að það er sem sagt ekki leyft, sem mér finnst frekar sorglegt.. Greinilegt að Kanarnir eru ekki tilbúnir fyrir ákveðnar breytingar þó svo að það hafi verið sigur fyrir marga að Obama hafi verið kosinn.

Helgin verður svo bara fín, förum nokkur út að borða í kvöld á snilldar eþíópískan veitingastað.. Á morgun er svo fótboltaleikur og strákarnir í húsinu eru með 2 gæja sem eru að skoða skólann og verða líklega í liðinu næsta ár svo við gerum örugglega eitthvað með þeim um helgina.

Farið nú að reyna að gera eitthvað í þessu blessaða gengi svo ég þurfi ekki að vera með stanslaust samviskubit yfir hvað maður eyði miklu ;)

 

Íhaaa!Herdís Helga Arnalds

Ég er svo ánægð!! var rétt í þessu að fá að vita að ég er að fara með liðinu til Oregon á fimmtudaginn! :) Þetta kom frekar mikið á óvart því ég hélt að ég myndi ekki komast svona strax í liðið sem ferðast þar sem það eru alltaf bara 7 eða 10 bestu sem fara!  Á þetta mót voru teknir 10 og ég var valin sem ein af þeim.. íhhaaa! 
Er búin að vera að bæta mig jafnt og þétt og ég ætla svo sannarlega að hlaupa af mér rassinn um helgina! Það verður tekin góð bæting, því get ég lofað ykkur!
Flugið er sem sagt á fimmtudagsmorgun og mæting er klukkan 7.. við komum svo heim á sjálfri Halloween svo við munum ekki missa af stuðinu.
Það sem er fyndnast við þetta er að við erum 5 sem búum saman hérna (ég + Kári + 4 gaurar úr liðinu) og við erum öll að fara.. ég er svo speeennt :)

Long time, no "see"Herdís Helga Arnalds

Úúúps, aðeins of langt síðan mín bloggaði. Bæti það hér með bara upp. 
Geysimargt búið að gerast síðustu vikur, það sem stendur upp úr er líklega það að ég keppti um síðustu helgi á móti í Santa Clara í 5km víðavangshlaupi. Þó að það sé nú kannski ekki hægt að bera saman tíma í Cross Country hlaupum þá var ég samt mjög ánægð því ég bætti mig um 20 sekúndur síðan í síðasta hlaupi :) Hljóp sem sagt á 19:20 og var sátt með það. Vikan er búin að vera nokkuð þétt, próf á miðvikudag og erfiðar æfingar. Núna er svona líklega hápunkti tímabilsins náð og æfingar í takt við það. Fer líklega að taka meiri hraðari gæðaæfingar núna eftir tímabilið sem er að klárast núna.

Annars er helgin búin að vera rosa fín, fór á ströndina á föstudaginn í San Francisco, veðrið er búið að vera svo gott.. Liggur við að manni hafi fundist of heitt á fótboltaleiknum í gær.  Berkeley var að spila á móti UCLA og það var rosaleg stemmning. 64 þúsund manns á vellinum og allir öskrandi á sitt lið enda er nokkuð mikill rígur á milli þessara skóla þar sem þetta eru hálfgerðir "nágrannaskólar".  Fyndið hvað maður er kominn inn í þennan ameríska fótbolta, en ég fíla hann í botn.  Leikirnir eru reyndar rosalega langir, geta farið allt upp í 4 tíma en algjörlega þess virði. Hins vegar finnst mér þessi blessaði hafnarbolti ekki skemmtilegur. Finnst reglurnar kjánalegar og mér finn st þeir eitthvað svo litlir íþróttamenn margir af þeim. Kannski á maður eftir að breyta um skoðun þegar tímabilið þeirra í háskóla hafnarboltanum byrjar meira enda hef ég nú svo sem ekki horft á mjög marga leiki. 
Fórum svo nokkrir úr liðinu í keilu í gær þar sem ég náttúrulega sýndi snilldartakta! Var reyndar bent á að halda mig kannski bara við hlaupin en ég meina ég var alls ekki í síðasta sæti, var svona einhvers staðar fyrir miðju.  

Var svo að uppgötva eina búð hérna í Bandaríkjunum sem er djö**** sniðug. Hún heitir Target og er stórmarkaður með fullt af sniðugu dóti og er ódýr! Fór með Mackenzie í liðinu um síðustu helgi í svaka leiðangur, fórum í Target, Emeryville á göngugötuna þar en ég auðvitað vitandi hvernig gengið var ákvað að spara öll stórinnkaup þar til seinna. 

Í vikunni fara svo bókstaflega ALLIR strákarnir í húsinu á Pac 10's mótið í Oregon sem þýðir að ég verð alein eftir.  Býst við að við stelpurnar tökum bara annað "sleepover" en við elduðum saman síðustu helgi og svo gisti Mickey hérna hjá mér.  Halloween er svo næstu helgi og jesús, það er bara ekki talað um annað en búninga og partý. Öll komment eru sem sagt vel þegin um hvernig búning ég á að klæðast, þar sem eins og flestir vita þá er ég ekki mjög hugmyndarík um svona hluti. Held ég klæði mig bara upp sem hlaupari eða eitthvað, það er örugglega voðalega þægilegt! :)
 
Later alligator!

FréttirHerdís Helga Arnalds

Ótrúlegt en satt, ætla ég ekki að blogga um kreppu og erfiðleika.. eða jú, kannski smá! Það er ótrúlegt hvað það tekur úr manni að vera alltaf að hafa áhyggjur af peningunum og tékka íslenskar heimasíður til þess að sjá fréttir vonandi það að eitthvað hafi lagast.  Annars er ég nú pottþétt ekki í versta ástandinu, margir búnir að tapa miklu meira.. enda átti ég nú kannski ekki mikið til að tapa :) En nóg um kreppu...

Allt gengur sinn vanagang hérna. Vikan búin að vera þvílíkt erfið æfingalega séð enda er kannski toppnum náð núna hvað varðar magn. Stóru mótin í Cross Countryinu fara að byrja og fara einhverjir úr liðinu til Indiana í næstu viku (t.d. Kári og co.) meðan ég fer til Santa Clara. Ég mun að öllum líkindum hlaupa 5km. víðavangshlaup þar og er orðin vægast sagt spennt. Held ég geti hlaupið nokkuð vel ef þreytan verður að mestu farin úr manni eftir æfingar þessarar viku. 

Skólinn gengur bara prýðilega, stærðfræðin er reyndar rosalega krefjandi. Ég er ennþá að átta mig á hvað það er til mikið af óeðlilega kláru fólki í heiminum. Ekkert smá hvað það er mikið af Asíubúum með mér í stærðfræði tíma sem vita svörin við öllum spurningum sem kennarinn spyr og þær spurningar eru ekkert auðveldar get ég sagt ykkur!

Veðrið er búið að vera æði, það er svo þægilegt að geta tekið æfingar í stuttbuxum og bol í staðinn fyrir að vera alltaf að klæða sig eins og bavíani fyrir snjóinn og hálkuna. Reyndar er alltaf ákveðinn sjarmi yfir snjónum og ég ætla sko að njóta íslenska veðursins í botn þegar ég kem um jólin. Er alveg farin að hlakka vel til að hitta alla aftur! Fjölskyldan sendi mer svo nammi úr Nammilandi í síðustu viku.. mmm.. er strax farin að hlakka til laugardagsins, er búin að vera svo dugleg að geyma það :)

Á morgun ætlum við Íslendingarnir að fara í smá dagsferð með "International House" þar sem farið verður á kúrekashow, vínsmökkun (sem ég má reyndar ekki taka þátt í), labbað í gegnum einhvern risa kornakur og fleira. Er bara orðin spennt fyrir því.
Næsta vika verður svo nokkuð brjáluð þar sem ég er í prófi í stjórnmálafræðinni og það er óeðlilega mikill lestur!

Læt heyra frá mér aftur fljótlega, eigið góða helgi! 

Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Herdís Helga Arnalds
  • Netfang: herdis@berkeley.edu
  • Staður: Berkeley, California

Atburðarteljari